1994

Fundargerð 7. fundar 1994, 10. júní

 

Fundur var settur kl. 9.10 og voru þá allir nefndarmenn mættir: Guðný Gerður Gunnarsdóttir formaður, Guðmundur Gunnarsson, Hörður Ágústsson, Sturla Böðvarsson og Þór Magnússon. Auk þeirra sat fundinn Magnús Skúlason arkitekt nefndarinnar sem ritaði fundargerð í fjarveru Guðmundar L. Hafsteinssonar.

 

1. Fundargerð 6. fundar frá 10. maí samþykkt með eftirfarandi  athugasemd um 7. lið,

Brenna, Bergstaðastræti 12.:

Samþykkt að bóka sérstaklega að eigendur Brennu eigi engar fjárhagskröfur á hendur húsafriðunarnefndar vegna stjórnvaldsaðgerða hennar.

 

2. Staðsetning þjónusu- og verkstæðishúss að Víðimýri.

Eftir umræður var eftirfarandi bókun samþykkt:

"Húsafriðunarnefnd ríkisins er andvíg fyrirhugaðri nýbyggingu vegna staðsetningu hennar, efnismeðferðar og hönnunar. Nefndin býðst hins vegar til að kosta hönnun húss á svipuðum stað sem fellur betur að kirkjunni og umhverfi hennar.

Húsafriðunarnefnd samþykkir að beina þeim tilmælum til skipulagsstjóra ríkisins að hann beiti sér fyrir því að ákvæðum skipulags- og byggingarlaga verð framfylgt við umfjöllun og afgreiðslu á umsókn um byggingarleyfi sem nú liggur fyrir byggingarnefnd".

 

3. Goðdalakirkja. Lagt fram bréf Hjörleifs Stefánssonar um rýmkun bekkja og staðsetningu legsteina inni í kirkjunni.

Efirfarandi bókun var samþykkt:

Húsafriðunarnefnd ríkisins mælir ekki gegn breytingum á bekkjaskipan kirkjunnar en óskar eftir nánari upplýsingum um fyrirkomulag. Þá samþykkir nefndin fyrir sitt leyti að legsteinum sé fyrirkomið inni í kirkjunni en vísar því erindi að öðru leyti til þjóðminjavarðar sbr. IV kafla þjóðminjalaga og 11. grein reglugerðar um þjóðminjavörslu.

 

4. Goðdalakirkja, beiðni um aukafjárveitingu.

Synjað

 

5. Dómkirkjan í Reykjavík. Lögð fram greinargerð Þorsteins Gunnarssonar um bekkjaskipan kirkjunnar.

Erindinu var frestað en starfsmanni falið að koma á fundi með endurbótanefnd þar sem málið yrði kynnt nánar.

 

6. Gamli bærinn að Húsafelli.Lagt fram bréf Kristleifs Þorsteinssonar.

Nefndi samþykkti að láta dr. Ríkharð hjá Línuhönnun gera úttekt og kostnaðaráætlun vegna burðarvirkis hússins  til að í ljós komi hvort viturlegt sé að endurbyggja húsið.

 

7. Grundargata 5, Akureyri. Viðgerð.

Nefndin samþykkti að mæla með bárujárni á þak hússins og steinblikki á veggi þessa húss og annarra af sömu gerð ef nokkur kostur væri en til vara væri notuð upphafleg timburklæðning.

 

8. Flaggstangarhús í Grindavík. Lögð fram tilkynning um breytingar.

Frestað, starfsmönnum falið að skoða.

 

9. Hafnargata 44, Seyðisfirði. Lögð fram bréf bæjarstjóra og bókun bæjarráðs þar sem óskað er vitneskju um styrkveitingar ársins.

Efirfarandi bókun var samþykkt:

"Á árinu 1994 jókst fjöldi umsókna sem barst sjóðnum um 33% milli ára. Þetta hefur orðið til þess að styrkir hafa orðið lægri en ella eða ekki af styrkveitingu orðið.

Húsafriðunarnefnd harmar að styrkur til húss yðar gat ekki orðið hærri af fyrrgreindri ástæðu.

Varðandi bókun bæjarráðs um hverjir hafa hlotið styrki á árinu og til hvaða verkefna, þykir rétt að taka fram að upplýsinga um endanlegar styrkveitingar og afgreiðslur húsafriðunarsjóðs munu fyrst liggja fyrir í árskýrslu húsafriðunarnefndar, sem birt verður í upphafi næsta árs.

 

10. Gamla K.H. hús Blönduósi. Lagt fram bréf Guðsteins Einarssonar þar sem farið er fram á endurskoðun á afgreiðslu styrkveitingar tilhússins þ.e, synjun.

Frestað. Málið skoðist með öðrum beiðnum um endurskoðun á styrkveitinum.

 

11. Aðalstræti 16. Ísafirði. Áætlun Teiknistofunnar h.f. Ármúla 6.

Efirfarandi bókun var samþykkt:

"Húsafriðunanefnd lýsir yfir ánægju með þá vinnu sem hafin er og hve góð samvinna hefur tekist milli Teiknistofunnar h.f., Pósts og síma og húsafriðunarnefndar um endurbyggingu Aðalstrætis 16 á Ísafirði. Húsafriðunarnefnd óskar þó eftir að gluggar á efri hæð eldra húss  verði endurgerðir  á upphaflegan hátt, ef þess er nokkur kostur, samanber ljósmynd sem tekin var fyrir aldamót"

 

12. Pakkhús í Ólafsvík. Lögð fram áætlun Jóns Nordsteien

Samþykkt með athugasemdum um hvort stigi gæti orðið þægilegri.

 

13. Tilkynning menntamálaráðherra um skipan varamanna í húsafriðunarnefnd.

Lagt fram. Samþykkt að stefna að sameiginlegum fundi í júlí.

 

14. Reglugerðarbreyting á reglugerð um þjóðminjavörslu.

Lagt fram. Formanni og þjóðminjaverði falið að undirbúa málið milli funda.

 

15. Bréf Hjörleifs Stefánssonar um endurskoðun á friðun húsa.

Nefndin samþykkti að þakka fyrir bréfið og koma á fundi með Hjörleifi þar sem málið yrði rætt frekar.

 

16. Sundstræti 16 Ísafirði. Lagt fram bréf byggingarfulltrúans á Ísafirði.

Nefndin samþykkti að ekki væri ástæða til að beita friðunarákvæðum þjóðminjalaga til að koma á veg fyrir fyrirhugaðar breytingar.

 

17. Ferðir starfsmanns í maí um Vestfirði og Snæfellsnes. Frestað

 

18. Mál sem starfsmenn hafa afgreitt á milli funda:

a. Hofskirkja.  Staðsetning þjónustuhúss til þriggja ára. Samþykkt

b. Hólar í Hjaltadal. Breytingar á skipulagi. Samþykkt

c. Bankastræti 12, Reykjavík. Breyting á gluggum. Samþykkt.

d. Kirkjutorg 6, Reykjavík. Ósk um að nýta styrk til kaupa á flísum. Samþykkt.

e. Öldugata 23, gamli Stýrimannaskólinn. Áætlun Páls V. Bjarnasonar um endurbyggingu hússins (án sökkullista). Samþykkt


 Magnús Skúlason





Útlit síðu: