1994

Fundargerð 9. fundar 1994, 14. ágúst


9. fundur húsafriðunarnefndar ríkisins var haldinn sunnudaginn 14. ágúst í Flatey í Breiðafirði. Fundur var settur kl. 13.25 í Bentshúsi og voru þá mætt Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Sturla Böðvarsson og Þorsteinn Gunnarsson varamaður Harðar Ágústssonar. Þór Magnússon boðaði forföll sem og varamaður hans. Auk nefndarmanna sátu fundinn Magnús Skúlason og Guðmundur L. Hafsteinsson sem ritaði fundargerð.

 

Formaður setti fund og bauð Þorstein Gunnarsson velkominn til starfa í húsafriðunarnefnd.

 

1. Fundargerð fundar 5. júlí sl. Samþykkt.

 

2. Reglugerðarbreyting varðandi stöðu framkvæmdastjóra nefndarinnar.

Guðný Gerður greindi frá viðræðum við Þór Magnússon þjóðminjavörð um reglugerðarbreytinguna. Þau voru sammála um að tryggja þurfi samvinnu húsafriðunarnefndar og húsverndardeildar Þjóðminjasafnsins, að reka deildina og starfsemi nefndarinnar á sama stað í húsi safnsins og að athuga þurfi hjá ráðuneyti hver verði staða framkvæmdastjóra gagnvart ráðuneyti, starfslýsingu og launakjör.

Nefndarmenn ræddu stöðu nefndarinnar og deildarinnar en við breytinguna flytst til að mynda skráning bygginga sem hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi frá húsverndardeild yfir til húsafriðunarnefndar. Við breytinguna mun húsverndardeild safnsins fyrst og fremmst sjá um viðhald húsa í Húsasafninu.

Magnús Skúlason gerði tillögu um að hann sem arkitekt nefndarinnar heyrði beint undir nefndina en ekki undir framkvæmdastjóra hennar. Einnig óskaði hann eftir að athugað yrði hvort hægt væri að hækka laun sín. Sturla Böðvarsson taldi tillaga um aðgreiningu milli framkvæmdastjóra og starfsmanns nefndarinnar gengi ekki upp stjórnsýslulega. Hugsanlegir starfsmenn yrðu að vera undir stjórn framkvæmdastjóra.

Guðný Gerður taldi nauðsynlegt að á þessum starfsvettvangi væri einnig starfandi listfræðingur, þjóðháttafræðingur eða sagnfræðingur. Guðný Gerður óskaði eftir að afgreiðslu málsins yrði frestað milli funda svo hún hefði tök á að ræða við Árna Gunnarsson í menntamálaráðuneytinu og Þór Magnússon. Samþykkt.


 

3. Kynnisferð til Danmerkur vegna húsakannanna og námskeið á vegum nefndarinnar.

Guðmundur L. gerði grein fyrir kynnisferð sem farin verður til Danmerkur 2. - 18 september nk. Tilgangur farinnar er að kynnast hvernig unnið er að húsakönnunum í Danmörku og hvernig unnið er úr skráningu húsa. Síðar í haust verður haldið námskeið hér á landi þar sem Greegers-Ussing arkitekt hjá Skov- og naturstyrelsen mun ásamt starfsmönnum nefndarinnar halda námskeið um gerð húsakannana sem byggir á danska SAVE-kerfinu.

Samþykkt að stefna að því að halda námskeiðið í  byrjun nóvember og kanna hvort Skipulag ríkisins muni geta tekið þátt í námskeiðinahaldinu sem samstarfsaðili.

 

4. Dómkirkjan í Reykjavík. Greinargerð Þorsteins Gunnarssonar um útfærslu á fyrirhuguðum breytingum bekkja.

Þorsteinn Gunnarsson gerði grein fyrir því hvernig hugmyndir um breytingu á bekkjaskipan Dómkirkjunnar hefðu þróast mörg undanfarin ár. Þorsteinn lagaði fram teikningar af fyrirkomulagi bekkja og þverskurð af bekkjum í mkv. 1:1 og sýndi fram á að nýta mætti mikinn hluta bekjanna við þær breytingar sem farið er fram á. Einnig kom fram í máli Þorsteins að upphaflega hefðu þiljur í baki bekkjanna gengið niður á gólf og því ekki verið unnt að fyrir kirkjugesti að rétta úr fótum þegar setið var undir messum.

Þorsteinn Gunnarsson vék síðan af fundi þegar nefndarmenn ræddu um málið.

Fram kom að nefndarmenn voru sammála um að fullnægjandi gögn lægju nú frammi svo unnt væri að taka afstöðu til málsins. Nefndarmenn lýstu skoðunum sínum og voru sammála um að fresta endanlegri afgreiðslu málsins þar til síðar í vikunni þegar unnt væri að halda fullskipaðan fund. Frestað.

 

5. Reykholtskirkja. Ósk sóknarnefdar um að flytja kirkjuna á brott.

Rætt var um ósk sóknarnefndar um að flytja kirkjuna á brott.

Eftirfarandi bókun var samþykkt:

Í ljósi þess samkomulags sem gert var á sínum tíma milli þjóðminjavarðar og sóknarnefndar samþykkir húsafriðunarnefnd ríkisins að leyfa flutning Reykholtskirkju á annan stað til að tryggja varðveislu hennar og heimilar sóknarnefnd að vinna að því máli. Finnist ekki viðhlítandi staður fyrir kirkjuna verði málinu vísað aftur til húsafriðunarnefndar ríkisns.

 

6. Gufudalskirkja.

Lögð fram greinargerð Grétars Markússonar um viðgerð kirkjunnar ásamt teikningum af þilofnum o.fl. Samþykkt var að fela starfsmönnum að ræða við hönnum um val á ofnum.

 

7. Óafgreiddir styrkir.

a. Sýning í Aarhus um íslenska byggingarlist.

Guðmundur Gunnarsson gerði grein fyrir sýningunni sem er yfirlitssýning um sögu íslanskrar byggingarlistar frá torfbæjum fram til dagsins í dag.

Samþykkt að veita styrk að upphæð kr. 350.000. Guðmundur Gunnarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

 

b. Gamla kaupfélagshúsið á Blönduósi. Samþykkt að veita styrk að upphæð kr. 150.000.

 

c. Laxamýri í Aðaldal. Samþykkt að veita styrk að upphæð kr. 200.000 til að gera frumathugun á sögu, ástandi og kostnaði við viðgerð þess. Ekki tekin afstaða til þess á þessu stigi hvort unnt verði að veita styrk til framkvæmda. Samþykkt að fela Finni Birgissyni að vinna verkið.

 

Liðir d, e og f frestað milli funda.

 

9. Önnur mál.

Hlaðvarpinn Vesturgötu 3. Lagt fram bréf og teikningar Guðrúnar Jónsdóttur um breytta framkvæmdaröð og útlit austurhliðar verslunarhúss. Samþykkt.

 

Riishús á Borðeyri. Lögð fram teikning Þorgeirs Jónssonar af gluggum í Riishús. Nefndin samþykkir ekki úitfærslu á römmum í glauggum og fól starfsmönnum að ræða við hönnuð um aðra útfærslu.

 

Húsfélag Alþýðu. Lagt fram bréf húsfélags Alþyðu vegna framkvæmda við húsin. Samþykkt að starfsmenn skoði framkvæmdir og meti þær.

 

Félagsheimilið Dagsbrún undir Eyjafjöllum. Lagt fram bréf  áhugahóps um varðveislu hússins. Nefndin tók jákvætt undir erindið en hefur ekki tök á því að veita styrk til hússin á þessu ári en beinir því til hópsins að sækja um fyrir 1. febrúar nk.

 

Reynivallakirkja í Kjós. Lagt var fram bréf sóknarnefndar. Samþykkt að fela starfsmanni að ræða við sóknarnefnd um málið.

 

Óttastaðir vestri. Myndir lagðar fram af framkvæmdum. Þar sést að nýtt járn er allt ranglega nelgt og hefur beglast við hvern nagla. Óviðunandi frágangur og því ekki hæt að greiða styrk sem veittur var til verksins fyrr en skipt hefur verið um járn. Starfsmenn skoði húsið.

 

Keldnakirkja á Rangárvöllum. Samþykkt að veita styrk að upphæð kr. 150.000 til viðgerðar á hurð og gólfi.

 

Keldur á Rangárvöllum, útihús frá hjáleigu sunnan við bílastæði. Skúli Lýðsson hefur óskað eftir leyfi til að fella þekjur útihúsa sem tilheyrðu hjáleigu þar sem þau eru að falli komin og hættuleg mönnum og skeppnum. Nefndarmenn ræddu möguleika og nauðsyn þess að varðveita útihús á Keldum og sýna þannig torfbæ með tilheyrandi útihúsum. Samþykkt var að leyfa að taka þekjurnar ofan.

 

Hverakot í Grímsnesi. Samþykkt að leyfa endurbyggingu bæjarins en jafnfram vísað í fyrri bókun um málið.

 

Fundi frestað kl. 16.10 og fóru nefndarmenn og starfsmenn í skoðunarferð um þorpið í Flatey og skoðuðu umhverfið og hús.

 

 

Kl. 18.45 var fundi fram haldið eftir skoðunarferð.

 

8. Þorpið í Flatey.

 

Nefndarmenn samþykktu að stefna að því að friða húsin í þorpinu og umhverfi þeirra og fólu starfsmönnum að vinna stutta greinargerð um hvert hús í þorpinu og tiltaka til hverra þátta friðunin tæki.

 

Fundi slitið kl. 19.15.

 

Guðmundur L. Hafsteinsson

 





Útlit síðu: