1999

Fundargerð 5. fundar 1999, 21. maí


sem haldinn var að Lyngási 7 í Garðabæ, kl. 9.00 – 12.30.

 

Viðstaddir voru þeir Þorsteinn Gunnarsson formaður nefndarinnar, Guðmundur Gunnarsson, Magnús Karel Hannesson, Þór Magnússon og Pétur Ármannsson, ásamt Magnúsi Skúlasyni sem ritaði fundargerð.  Guðrún Kristinsdóttir boðaði forföll, Sigríður Sigurðardóttir, varamaður hennar, átti ekki heimangengt.

 

1.      Fundargerð 4. fundar Húsafriðunarnefndar frá 25. mars s.l. lögð fram og samþykkt.

 

2.  Dómkirkjan í Reykjavík.  Breytingar á turni.

Formaður nefndarinnar Þorsteinn Gunnarsson vék af fundi og og við formennsku tók varaformaður, Guðmundur Gunnarsson.  Katrín Fjeldsted var erlendis.

Lagðar voru fram teikningar Winstrups arkitekts ásamt erindi Þorsteins Gunnarssonar arkitekts dagsett 18. maí s.l.

Erindið var samþykkt með 3 samhljóða atkvæðum.

 

3.       Austurstræti 16.  Umsókn um að aflétta friðun innréttinga í Reykjavíkurapóteki.

Lagt var fram að nýju erindi Eignarhaldsfélagsins Kirkjuhvols dagsett 8. febrúar s.l..

Eftirfarandi bókun var samþykkt:

“Aflétting friðunar innréttinga er synjað, en veitt er tímabundið leyfi til niðurtöku innréttinga á gólfi í fremra rými og niðurtöku allra innréttinga í innra rými.  Eigandi sjái um uppmælingu, niðurtöku og geymslu þeirra innréttinga sem fjarlægðar verða.

Breytingar á fremra rými verði ekki leyfðar að öðru leyti.

Allar framkvæmdir verði í samráði við framkvæmdarstjóra Húsafriðunarnefndar.”

 

4.      Gamli kennaraskólinn í Reykjavík.  Umsókn um að setja kvisti á þak hússins.

Lagt var fram erindi Páls V. Bjarnasonar arkitekts dagsett 2. maí s.l. ásamt teikningum.

Erindinu var synjað.

 

5.      Staða uppmælinga kirkna og uppskrifta visitazía.  Lagt fram yfirlit yfir stöðu mála.

Framkvæmdarstjóra falið að gera á yfirlitinu leiðréttingar fyrir næsta fund.

 

6.      Formaður greindi frá því að hann hefði í samráði við varaformann veitt framkvæmdarstjóra heimild til að sækja ráðstefnu á Borgundarhólmi 7.-8. maí s.l. með skilyrði um skriflega greinargerð.  Framkvæmdarstjóri gerði grein fyrir ferðum sínum til München og Borgundarhólms.  Staðfest var að framkvæmdarstjóri væri ítrekað kynntur sem starfsmaður Þjóðminjasafns erlendis.  Þetta óskast leiðrétt.

 

7.      Önnur mál.

a.       Laufás við Laufásveg í Reykjavík. Umsókn um styrk.

Framkvæmdarstjóri kynnti málið. Frestað.

 

b.      Stokkseyrarkirkja.

Vegna blaðafréttar áréttar nefndin þá vinnureglur að framkvæmdarstjóri geri nefndinni jafnóðum grein fyrir öllum áætlunum um endurbætur á friðuðum kirkjum.  Ákveðið að hafa fastan lið á fundum nefndarinnar framvegis undir yfirskriftinni “skýrsla framkvæmdarstjóra”.

 

c.       Dómkirkjan.

Formaður kynnti óskir Ferlinefndar Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu um aðgang fatlaðra að Dómkirkjunni framanverðri.  Nefndin ítrekaði þau almennu viðhorf sín að breyta ekki aðalinngangi friðaðra húsa.

 

d.  Að gefnu tilefni varpaði Þór Magnússon fram þeirri hugmynd hvort nýta mætti gamla hegningarhúsið við Skólavörðustíg fyrir kennsluaðstöðu í arkitektanámi.

 

Magnús Skúlason





Útlit síðu: