Fundargerð 2. fundar 2005, 23. febrúar
sem haldinn var í húsakynnum Húsafriðunarnefndar að Suðurgötu 39 í Reykjavík.
Viðstaddir voru þeir Þorsteinn Gunnarsson formaður nefndarinnar, Pétur H. Ármannsson, Nikulás Úlfar Másson, Margrét Hallgrímsdóttir og Magnús Skúlason sem ritaði fundargerð. Einar Njálsson og Guðmundur Þór Guðmundsson boðuðu forföll.
1. Fundargerð síðasta fundar frá 28.janúar s.l. Samþykkt.
2. Styrkveitingar ársins 2005
Forstöðumaður lagði fram rekstraráætlun ársins 2005, sem fylgir hjálögð; ennfremur yfirlit yfir ógreidda styrki, dags. 16. febrúar 2005.
Samþykktar voru 179 styrkveitingar að upphæð kr. 125.275.000. Þar af hafði Fjárlaganefnd ákvarðað í samráði við forstöðumann styrkveitingar að upphæð kr. 86.000.000
Við afgreiðslu styrks til Jensenshúss, Eskifirði vék formaður af fundi.
3. Önnur mál
a. Lækjargata 14 a. Breytingar á inngangi.
Eftirfarandi samþykkt var gerð:
b. Ályktun um verndun húsa á Laugavegi
Sameiginleg ályktun Húsafriðunarnefndar ríkisins og Þjóðminjavarðar í tilefni af opinberri umræðu um verndun húsa við Laugaveg samþykkt:
Húsafriðunarnefnd og Þjóðminjavörður fagna áformum um verndun á um fimmta tug merkra bygginga frá ólíkum tímaskeiðum við Laugaveg og Bankastræti, sem fyrirliggjandi deiliskipulagstillögur fela í sér.
Þrátt fyrir ofangreind verndunaráform hafa Húsafriðunarnefnd og Þjóðminjavörður áhyggjur af þeim húsum við Laugaveg sem byggð eru fyrir 1918 og heimild er fyrir að víki skv. deiliskipulagi. Mælst er til þess að varðveislugildi þeirrra verði kannað nánar sem og möguleikar á framtíðarnýtingu þeirra í tengslum við nýja uppbyggingu á sömu reitum.
Magnús Skúlason
