2005

Fundargerð 7. fundar 2005, 4. nóvember


sem haldinn var í  húsakynnum Húsafriðunarnefndar að Suðurgötu 39 í Reykjavík.

Viðstödd voru þau Þorsteinn Gunnarsson formaður nefndarinnar, Pétur H. Ármannsson, Nikulás Úlfar Másson, Einar Njálsson, Margrét Hallgrímsdóttir, Guðmundur Þór Guðmundsson og Magnús Skúlason sem ritaði fundargerð.

 

1.  Fundargerð síðasta fundar frá 28. september s.l. Samþykkt meðl breytingum.

Vegna dagskrárliðar 4 gerði formaður grein fyrir fundi sem haldinn var að morgni 29. september með arkitektunum Stefáni Erni Stefánssyni og Grétari Markússyni ásamt Þorsteini Bergssyni f.h. verktaka, en auk formanns sátu fundinn forstöðumaður og varaformaður Húsafriðunarnefndar. Í ljósi reynslunnar var ákveðið að taka framvegis ekki viðkvæm mál til afgreiðslu án kynningar hönnuða og/eða rækilegrar athugunar vinnufundar fyrir formlegan fund nefndar. Þá skal þess og gætt að nefndarmenn séu upplýstir, þurfi að hnika samþykktum með stuttum fyrirvara.

 

2.  Mál sem forstöðumaður hefur afgreitt á milli funda Húsafriðunarnefndar:

 

a.  Bergstaðastræti 43 A, Reykjavík (1917).  Reyndarteikningar.

 

b.  Mýrargata 14, Reykjavík (1905).  Stækkun.

 

c.  Ránargata 50, Gíslholt vestra, Reykjavík (1906).  Reyndarteikning og stækkun.

 

d.  Austurvegur 13 B, Seyðisfirði (1912).  Breytingar á innra og ytra borði.

 

e.  Lindargata 22 A, Reykjavík (1905).  Niðurrif.

 

f.  Lindargata 24 A , Reykjavík (1906).  Niðurrif.

 

g.  Arnargata 8, Reykjavík (1898).  Gerð niðurgrafinnar geymslu og bílastæða.

 

h.  Lindargata 25, Reykjavík (1906).  Breytingar á ytra borði.

 

i. Hafnarstræti 17, Ísafirði (1907).  Niðurrif eða flutningur af lóð.

 

j.  Grettisgata 8, Reykjavík (1903).  Flutningur, nýbygging.

 

k.  Vesturgata 26 C, Reykjavík (1897).  Viðbygging.

 

l.  Vesturgata 2, Reykjavík (1920).  Kjallari.

 

m.  Bergstaðastræti 19, Reykjavík (1896).  Breytingar á innra og ytra borði.

 

n.  Bárugata 30 A, Reykjavík (1936).  Stækkun bíslags á norðurhlið.

o.  Hvanneyrarbraut 66, Siglufirði (1906).  Endurbætur á ytra og innra borði.

 

p.  Vestmannabraut 60 A og B, Vestmannaeyjum (1912, 1924, 1940, 1958).  Minnisblað.

 

q.  Aðalstræti 24, Akureyri (1902).  Breytingar á ytra borði.

 

r.  Laugavegur 74, Reykjavík (1902).  Viðbygging; endurbygging.

 

s.  Laufásvegur 42, Reykjavík (1908).  Breytingar á ytra borði.

 

t.   Spítalavegur 1, Akureyri (1904).  Þakverönd. 

 

Afgreiðslur forstöðumanns voru staðfestar.

 

3. Bergstaðastræti 12, Brenna, Reykjavík. Álit á niðurrifi.

Lögð fram beiðni Óla Jóns Hertervig f.h. Fasteignaumsýslu Reykjavíkurborgar frá 5. október sl. um ofangreint mál. Formaður gerði grein fyrir erindinu sem kom fyrst til afgreiðslu Húsafriðunarnefndar í júní 1993, því næst í maí 1994, enn í október 1995 og loks í mars 1996. Þá skýrði hann frá vettvangsskoðun þeirra Magnúsar 2. nóvember s.l.

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

Með vísan til álits borgarminjavarðar dags. 31. 10 .2005 ásamt umsögn borgarskipulags dags. 25. 10. 2005 og að því gefnu að borgaryfirvöld falli frá kröfum um styrkveitingar úr Húsafriðunarsjóði ríkisins til endurbyggingar hússins frá því í október 1995, leggst Húsafriðunarnefnd ríkisins gegn því að húsið Brenna, Bergstaðastræti 12, Reykjavík, verði rifið.

 

4. Hafnarstræti 21, Ziemsenhús, Reykjavík. Álit á niðurrifi.

Lögð fram beiðni  Óla Jóns Hertervig f.h. Fasteignaumsýslu Reykjavíkurborgar frá 5. október sl.

Frestað.

Þá var forstöðumanni falið að boða Sigurð Einarsson, verkefnisstjóra Portus group, til fundar um Ziemsenshús og framtíð þess.

 

5.  Tillaga að deiliskipulagi á Kirkjutorgsreit í Reykjavík.

Lögð var fram ofangreind deiliskipulagstillaga.

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

Húsafriðunarnefnd ríkisins beinir þeim tilmælum til Skipulagsráðs að tillaga að deiliskipulagi Kirkjutorgsreits verði endurskoðuð með tilliti til húshæða og mælikvarða. Við endurskoðun verði tekið tillit til friðaðra og varðveisluverðra húsa í næsta nágrenni, þ.m.t. Dómkirkjunnar, Alþingishússins, Iðnó, Iðnskólans gamla, Lækjargötu 10 annars vegar og Kirkjutorgs 6A, Skólabrúar 1 og 2, Templarasunds 5 og Vonarstrætis 4 hins vegar.

Áætluð nýbygging á horni Vonarstrætis og Lækjargötu virðist falla vel að götumynd og nærliggjandi húsum, en áætluð nýbygging á lóð Lækjargötu 12 er að rúmtaki víðsfjarri því að vera í samræmi við byggðina í kring eða markmið Kvosarskipulags frá 1986 að því er varðar nýbyggingar við Lækjargötu. Hækkun hússins Kirkjuhvols við Kirkjutorg 4 er að mati Húsafriðunarnefndar afar óheppileg fyrir Dómkirkjuna og óásættanleg.

Hækkun Templarasunds 3 orkar tvímælis í þeirri mynd sem sýnd er á tillöguuppdrætti.

 

6. Tillögur að friðun húsa.

Samþykkt var að fela forstöðumanni undirbúning að friðun Heilsuverndarstöðvarinnar.

Tillögum forstöðumanns að friðun fleiri vita var vísað til umræðu um næstu stefnuskrá Húsafriðunarnefndar sem ráðgert er að fari fram í byrjun árs 2006.

 

7.  Húsasafn Þjóðminjasafns. Framtíðarskipan.

Á fundinn mætti Hrefna Róbertsdóttir f.h. Þjóðminjasafns.

Lagt fram minnisblað Þjóðminjavarðar dagsett 4. nóvember 2005 um samstarf Þjóðminjasafns og Húsafriðunarnefndar með tillögu að verkaskiptingu.

Auk þess var lagt fram minnisblað Guðmundar L. Hafsteinssonar arkitekts frá 6. október sl. ásamt hugmyndum Hjörleifs Stefánssonar arkitekts um handverksmenningu og varðveislu menningarsögulegra húsa.

Þjóðminjavörður setti fram þá skoðun að Þjóðminjasafn og Húsafriðunarnefnd tæki upp formlegt samstarf um varðveislu húsasafns Þjóðminjasafnsins. Verkaskipting væri með þeim hætti að Húsafriðunarnefnd hefði umsjón með viðgerðum og viðhaldi húsa í Húsasafni Þjms í samráði við Þjóðminjasafnið. Þá væri nauðsynlegt að endurmeta varðveislugildi húsa í safninu m.t.t. þess hvort friða beri einstök hús eða taka þau úr safninu. Æskilegt væri að slíkt endurmat færi fram í samvinnu við Húsafriðunarnefnd.

Forstöðumaður lagði áherslu á að meginhlutverk Húsafriðunarnefndar væri að standa vörð um byggingararfinn, en þar væru torfhúsin engin undantekning sem merkasta framlag Íslendinga til heimbyggingarlistarinnar. Því þyrftu starfsmenn Húsafriðunarnefndar einnig að hafa þekkingu á viðhaldi og viðgerðum þeirra.

Það var álit fundarmanna að heppilegt yrði að hafa framkvæmdaþáttinn hjá Húsafriðunarnefnd en rannsóknarþáttinn áfram hjá Þjóðminjasafni. Formaður lagði til að í tilefni þessa samstarfs yrði þegar hafinn undirbúningur að nýju leiðbeiningarriti í ritröð nefndarinnar sem fjalla myndi um viðhald torfhúsa.

Samþykkt var að mynda sameiginlegan starfshóp.

 

8. Önnur mál.

a.  Kirkjur Íslands.

Formaður sagði frá tveimur nýútkomnum bindum í ritröðinni sem bæði fjalla um friðaðar kirkjur í Skagafjarðarprófastsdæmi og afhenti nefndarmönnum eintök. Ennfremur sagði hann frá örsýningu í umsjá Jons Nordsteiens arkitekts sem hugmyndin væri að setja upp á Sauðárkróki á aðventu sem lið í kynningarátaki fyrir bókunum.

 

b.  Forstöðumaður sagði frá vinnufundi í Kaupmannahöfn og ráðstefnu í Stokkhólmi vegna aðgengi og frágengi fatlaðra. Ráðstefnan var á vegum Framkvæmdasýslu ríkisins og samsvarandi stofnana á Norðurlöndum. Sérlega góður rómur var gerður að framlagi  Húsafriðunarnefndar á vinnufundinum.

 

c. Héraðskólinn á Laugarvatni.

Forstöðumaður sagði frá fundi í Menntamálaráðuneyti vegna 40 milljóna framlags til viðgerða hússins á árinu.

 

d.  Viðeyjastofa. Flóttleiðir úr risi.

Formaður sagði frá fundi vegna athugasemda Eldvarnareftirlits.


Magnús Skúlason





Útlit síðu: