2007
Fundargerð 3. fundar ársins 2007
Fundargerð 3. fundar ársins 2007, sem haldinn var þriðjudaginn 3. apríl 2007 s.l. í húsakynnum Húsafriðunarnefndar að Suðurgötu 39 í Reykjavík.
Viðstödd voru þau Þorsteinn Gunnarsson formaður nefndarinnar, Pétur H. Ármannsson, Einar Njálsson, Nikulás Úlfar Másson, og Magnús Skúlason sem ritaði fundargerð. Júlíana Gottskálksdóttir og Guðmundur Þór Guðmundsson boðuðu forföll. Margrét Hallgrímsdóttir boðaði seinkun.
1. Fundargerð síðasta fundar frá 26. febrúar s.l. Samþykkt.
2. Listi yfir mál sem forstöðumaður hefur afgreitt á milli funda Húsafriðunarnefndar:
Brekkugata 10, Hafnarfirði (1919). Stækkun á húsi.
b. Bergstaðastræti 4, Reykjavík (að hluta fyrir 1918,1920/1928). Ný þakhæð.
c. Fríkirkjuvegur 1, Miðbæjarskólinn (1897-98). Tillaga að snyrtingum í kjallara.
Presthúsabraut 29, Akranesi (1903/1955). Hækkun á risi og port.
Þingholtsstræti 2-4, Reykjavík (1884/1954). Breytingar á ytra borði.
Vertshús, Flatey á Breiðafirði (1900/1934). Bakhús, nýbygging.
Kaupvangsstræti 6, Friðrik V, Akureyri (1922, 1928, 1949). Endurbætur.
Skúlaskeið 42, Hafnarfirði (1927). Nýtt vinnu- og geymsluhús á lóð.
Aðalgata 11, Blönduósi (1906). Breytingar á innra og ytra borði, húsi hnikað til.
Sólvallagata 23, Reykjavík (1907). Breytingar á ytra borði.
Afgreiðslurnar voru staðfestar
3. Vesturgata 16b, Gröndalshús, flutningur.
Lagt var fram bréf borgarminjavarðar dagsett 3. apríl sl. vegna ofangreinds máls. Formaður og forstöðumaður gerðu grein fyrir nýlegum fundi með borgarminjaverði og Hjörleifi Stefánssyni arkitekt þar sem málið hefði verið kynnt.
Eftirfarandi samþykkt var gerð:
Húsafriðunarnefnd gerir ekki athugasemdir við flutning hússins þar sem það getur ekki verið áfram á sínum stað. Gengið sé úr skugga um að það njóti sín sem best á nýrri lóð enda sé tryggt að farið sé með það sem safngrip.
4. Bræðraborgarstígur 31, Blómsturvellir, Reykjavík. Niðurrif eða flutningur.
Lagt var fram bréf Torfusamtakanna dagsett 18. mars sl. ásamt bréfi 7 hagsmunaaðilja dagsett 17. mars sl. þar sem gerð er "athugasemd við ákvörðun Húsafriðunarnefndar um leyfi til niðurrifs Bræðraborgarstígs 31, Blómsturvalla".
Eftirfarandi samþykkt var gerð:
Ekki var um ákvörðun nefndarinnar að ræða heldur álit sbr. 6 .gr. laga nr. 104/2001. Ekki var mælt með niðurrifi eða flutningi heldur, ekki gerð athugasemd við það. Æskilegt var talið að finna húsinu annan stað innan borgarmarkanna og varðveita trjágróður á lóðinni. Ástæða þess að ekki var mælt með varðveislu var að húsið þótti hafa takmarkað listrænt- og menningarsöguleg gildi. Ekki var á húsverndunarkorti Reykjavíkur gert ráð fyrir neinni tegund varðveislu hússins enda ekki verið gerð húsakönnun á svæðinu. Þá var farið ranglega með byggingarár hússins, það sagt 1911 í stað 1897.
Í ljósi nýrra forsendna mælir Húsafriðunarnefnd með að húsið standi áfram á sínum stað og nýtist í tengslum við notkun lóðar.
5. Hafnarstræti 53, Akureyri. Viðbygging og breytingar á ytra og innra borði.
Lagðar fram teikningar Opus ehf. dagsettar 8.desember 2006.
Samþykkt með athugasemdum um að minnka svalaskyggni og gera heilstæðan vegg að sunnan.
6. Þingholtsstræti 2 - 4. Fyrirspurn um niðurrif hússin og endurbyggingu í sama stíl.
Forstöðumaður sagði frá skoðunarferð hans og Einars Skúla Hjartarsonar húsasmíðameistara þar sem fram kom að engin ástæða væri fyrir niðurrifi vegna viðgerða og endurgerðar hússins heldur þveröfugt. Mikið væri um heillega viði og jafnvel glugga á efri hæð. Nefndin féllst á að engin ástæða sé fyrir niðurrifi hússins vegna endurgerðar þess.
7. Aukastyrkveitingar.
Formaður lagði til að kostuð yrði sýning í Eyjafirði á efni Eyjafjarðarbóka í ritröðinni Kirkjur Íslands eins og gert hefði verið á efni Skagafjarðar- og Húnaþingsbóka. Samþykkt að verja kr. 400.000 til sýningarinnar.
Þá skýrði forstöðumaður frá tveim styrkumsóknum sem hefðu misfarist, annars vegar vegna Kirkjuvegar 5, Hafnarfirði og hins vegar Nýlendugötu 18, Reykjavík.
Samþykkt að veita kr. 400.000 til hvors um sig.
Lögð fram umsókn um styrk til Jensens-húss á Eskifirði. Synjað með ábendingu um næsta umsóknarfrrest fyrir styrkveitingu 2008.
Þá skýrði forstöðumaður frá misræmi í frestun styrkja frá fyrra ári sem til kom vegna þess að styrkir að upphæð 1.350.000 höfðu verið greiddir út í upphafi ársins, en voru metnir sem frestaðir og ógreiddir. Forstöðumaður lagði fram nýjan lista um frestun styrkja samtals að upphæð 38.100.000.
Önnur mál:
a) Kirkjur Íslands.
Formaður sagði frá undirritun nýs samnings milli Húsafriðunarnefndar, Biskupsstofu og Þjóðminjasafns þar sem útgáfukostnaður skiptist í hlutföllunum 50%, 25%, 25 %. Samningurinn er í samræmi við samþykkt Húsafriðunarnefndar 19. desember 2006.
b) Formaður sagði frá fundi í Rannís 6. mars s.l. um ERA-net verkefni, helgað varðveislu menningarminja. Menntamálaráðuneyti tók að sér að senda fulltrúa á kynningarfund í Róm vegna málsins. Ráðuneytið mun síðan marka stefnu sem kynnt verður síðar.
c) Formaður sagði frá fundi sínum,varaformanns og forstöðumanns með borgarstjóra og formanni skipulagsráðs 13, mars s.l. um húsvernd í Reykjavík með sérstaka áherslu á Laugaveginn og Alliancehús ásamt Slippasvæði.
Var það samdóma álit þeirra þriggja að fundurinn hefði verið afar gagnlegur; þar hefði m.a. verið staðfest að mál hafi að undanförnu þróast til betri vegar á Slippasvæði, án þess að nokkuð sé enn í hendi, og til stæði að endurmeta skipulega gömul hús við Laugaveginn.
d) Formaður sagði frá áliti, sem hann hefði f.h. Húsafriðunarnefndar verið beðinn að gefa á tillögum nefndar um stefnu íslenskra stjórnvalda í byggingarlist. Álitið var sent út til nefndarmanna 26. mars s.l.
e) Forstöðumaður sagði frá málþingi í Skagafirði dagana 1.-2. apríl um íslenska torfbæinn. Sagt var frá skoðun á frambænum Brattahlíð í Svartárdal.
f) Umgengni í nágrenni friðaðra kirkna. Forstöðumaður sýndi myndir af umhverfi Auðkúlukirkju og sagði frá umhverfi Hjaltastaðakirkju. Hann taldi nauðsynlegt að koma kvörtunum á framfæri við eigendur sem í þessum tilvikum er Landbúnaðarráðuneytið.
Samþykkt.
Magnús Skúlason
P.S.
Ákveðin hefur verið ferð Húsafriðunarnefndar um Norðurland þann 25. - 27. júní nk. Flogið verður til Akureyrar snemma morguns þess 25. og komið til baka að kvöldi þess 27. Gist verður fyrri nóttina á Siglufirði en þá síðari á Akureyri.
