2007
Fundargerð 10. fundar ársins 2007
sem haldinn var þriðjudaginn 30. október s.l. í húsakynnum Húsafriðunarnefndar að Suðurgötu 39 í Reykjavík.
Viðstödd voru þau Þorsteinn Gunnarsson formaður nefndarinnar, Pétur H. Ármannsson, Nikulás Úlfar Másson, Guðmundur Þór Guðmundsson, Einar Njálsson, Margrét Hallgrímsdóttir og Magnús Skúlason sem ritaði fundargerð.
1. Fundargerð 9. fundar frá 18. september s.l. var lesin upp, þar eð hún hafði ekki verið send fundarmönnum í pósti. Samþykkt.
2. Listi yfir mál sem forstöðumaður hefur afgreitt á milli funda Húsafriðunarnefndar:
a. Silfurgata 5, Norska bakaríið, Ísafirði (1884). Álit á niðurrifi.
b. Vesturvör 25 (1996), 27 (1977), 27B (óskráð) og Hafnarbraut 12 (1951), Kópavogi. Umsögn.
c. Kirkjutorg 4, Reykjavík (1899). Breytingar á ytra borði.
d. Tryggvagata 10 (1906), 12 (1904) og 14 (1899). Vesturhluti Naustreits. Breyting á
deiliskipulagi. Umsögn.
e. Tillaga að deiliskipulagi hafnarsvæða Sandgerðisbæjar. Umsögn.
f. Merkurgata 9B, Hafnarfirði (1900). Breytingar á ytra borði.
g. Vesturgata 51, Vindhæli, Akranesi (1910). Umsögn.
h. Nýibær, Garðabæ (1908). Stækkun.
i. Fjarðargata 13, Þingeyri (1904). Tilfærsla innan lóðar.
Pétur H. Ármannsson vék af fundi við afgreiðslu á lið d.
Afgreiðslurnar voru staðfestar.
3. Lögfræðilegt álit á bótum vegna friðunar og vegna breytinga á skipulagi.
Á fundinn mætti Tryggvi Þórhallsson lögmaður og lagði fram álitsgerð um framkvæmd laga um húsafriðun og samspil þeirra við skipulags- og byggingarlög, dagsetta 29. október sl. sem send hafði verið nefndarmönnum til kynningar. Álitsgerðin var samin í samræmi við samþykkt nefndarinnar frá 11. september s.l. og í samráði við forstöðumann. Lögmaðurinn fór yfir álitsgerðina og svaraði spurningum nefndarmanna. Nefndin lýsti yfir mikilli ánægju með álitgerðina og var samþykkt að fá fund í menntamálaráðuneyti og leggja hana fram þar um leið og ræddar yrðu tillögur að friðun húsa á Akureyri. Þá lagði lögmaðurinn einnig fram drög að svari nefndarinnar til Akureyrarbæjar vegna Hafnarstrætis 98.
4. Viðeyjarkirkja.
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt lagði fram tillögu VGK-Hönnunar að þoku-sprinklervörn í kirkjunni.
Samþykkt.
5. Laugavegur 20. Niðurrif eða flutningur.
Lagðar fram ódagsettar tillögur Ragnheiðar Ingólfsdóttur arkitekts að útliti nýbyggingar ásamt erindi dagsettu 16. október s.l.
Eftirfarandi samþykkt var gerð:
Húsafriðunarnefnd gerir ekki kröfu um varðveislu hússins á þessum stað. Ekki er lagt mat
á hönnun framhliðar.
6. Grundarstígur 10, Reykjavík. Tillaga að friðun.
Forstöðumaður upplýsti að Ragnheiður Sigurðardóttir, afkomandi Hannesar Hafstein ráðherra, hefði haft samband við sig og lagt til að húsið verði friðað, m.a. til að heiðra minningu Hannesar. Þá sé húsið í hættu vegna vafasamra vinnubragða við endurbætur þess.
Málinu vísað til nýs forstöðumanns.
7. Lúðvíkshús hið eldra á Neskaupstað.
Forstöðumaður sagði frá fyrirhugaðri deiliskipulagsbreytingu á reit Lúðvíkshúss sem er elsta húsið á Neskaupstað, byggt 1881. Breytingin gerir ráð fyrir að reisa sex deilda leikskóla á reitnum og rífa eina elstu dráttarbraut á landinu ásamt því að rífa framangreint hús. Ekkert erindi um álit Húsafriðunarnefndar hefur borist frá Fjarðabyggð um málið.
Samþykkt að fela forstöðumanni ásamt eftirmanni að fylgja málinu eftir.
Um leið og formaður bauð nýjan forstöðumann Nikulás Úlfar Másson velkominn til starfa voru forstöðumanni Magnúsi Skúlasyni þökkuð vel unnin störf en starfslok hans verða þann 31. október 2007. Þá minnti formaður á kveðju-kvöldverð á veitingahúsinu Við Tjörnina hinn 31.10. kl. 19.30.
Fleira gerðist ekki. Fundi slitið.
Magnús Skúlason
