2009
Fundargerð 8. fundar ársins 2009
haldinn að Suðurgötu 39, þriðjudaginn 11. ágúst kl. 14:00.
Viðstödd voru þau Þorsteinn Gunnarsson formaður nefndarinnar, Pétur H. Ármannsson, Júlíana Gottskálksdóttir, Guðmundur Þór Guðmundsson, Einar Njálsson, Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður og Nikulás Úlfar Másson, sem ritaði fundargerð.
1. Fundargerðir 6. fundar, 28. apríl, og 7. fundar, 16. júní s.l., lagðar fram til samþykktar.
Samþykkt
2. Listi yfir mál sem forstöðumaður hefur afgreitt milli funda nefndarinnar:
- Laufásvegur 3, Stykkishólmi (1900-1906) – stækkun. Bréf Bjarnfríðar Vilhjálmsdóttur, skipulags- og byggingafulltrúa Stykkishólmsbæjar, dags. 16. júní 2009, vegna umsóknar um stækkun hússins samkvæmt tillöguteikningu frá Gláma • Kím arkitektum, dags. 13. maí 2009.
Ekki gerð athugasemd við erindið, enda verði endurbætur á húsinu og fyrirhuguð viðbygging gerðar í samræmi við aldur og gerð hússins og sent Húsafriðunarnefnd til umsagnar þegar nánari hönnun liggur fyrir.
- Grandagarður 2, Reykjavík (1924) – ný útihurð og breytingar innanhúss. Beiðni Silju Traustadóttur, akitekts hjá Glámu Kím, um umsögn vegna umsóknar um að gera nýja útihurð á austurhlið hússins nr. 2 við Grandagarð auk breytinga innanhúss skv. teikningum Glámu Kím arkitekta, dags. 23. júní 2009. Tillaga hefur verið send til menntamálaráðherra um friðun hússins.
Ekki er gerð athugasemd við erindið.
- Minjasafnskirkjan Akureyri (1846) – hitun. Forstöðumaður Húsafriðunarnefndar hefur skoðað tillögu að hitun í kirkjunni og ráðgast við formann nefndarinnar.
Ekki er gerð athugasemd við að notaður verði lághitaofn frá Veneto í kirkjuna. Lagt er til að bríkin á aftasta bekknum verið látin halda sér og bekkurinn færður upp yfir ofninn. Þar væri t.a.m. hægt að geyma bækurnar sem nú eru geymdar á bekknum.
- Laufásvegur 6, Reykjavík (1900) – svalir. Beiðni Páls V. Bjarnasonar, dags. 6. júlí 2009 um umsögn vegna svala á vesturhlið hússins. Einnig lögð fram umsögn borgarminjavarðar.
Ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaðar svalir á vesturhlið hússins nr. 6 við Laufásveg skv. teikningum Park teiknistofu dags. 20.05.2009.
- Klapparstígur 30 (Sirkus) (1883) – breytingar. Fyrirspurn frá Eddu Einarsdóttur arkitekt hjá ARKÍS ehf., dags. 1. júlí 2009, um fyrirhugaðar breytingar á húsinu ásamt teikningurm frá ARKÍS ehf. dags. 23. júní 2009. Einnig lögð fram umsögn borgarminjavarðar. Formaður Húsafriðunarnefndar svaraði erindinu með tölvupósti, dags. 6. júlí 2009:
Ekki er gerð athugasemd við fyrirhugaðar breytingar.
Allar afgreiðslur staðfestar.
3. Þrúðvangur, Laufásvegur 7, Reykjavík (1918) – beiðni um friðun. Bréf Páls V. Bjarnasonar og Sigríðar Harðardóttur, eigenda hússins, dags. 2. júní 2009, ásamt myndum, þar sem óskað er eftir að húsið verði friðað að ytra borði og fastar innréttingar, m.a. útskornar hurðir og lágmyndir í stofum hússins, ásamt aðalhurð og stiga, sem allt er útskorið af Ríkarði Jónssyni útskurðarmeistara.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Samþykkt að fela forstöðumanni að undirbúa tillögu friðun hússins til menntamálaráðherra í samræmi við lýsingu bréfritara.
4. Hótel Holt, Bergstaðastræti 37, Reykjavík (1965) – beiðni um friðun. Bréf Geirlaugar Þorvaldsdóttur, eiganda hússins, dags. 21. júní 2009, þar sem óskað er eftir að jarðhæð hótelsins sé friðuð. Gunnar Magnússon, húsgagna- og innanhússarkitekt teiknaði allar innréttingar og húsgögn og er öll umgjörð jarðhæðar að mestu óbreytt.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Beiðni vel tekið en afgreiðslu frestað. Nefndin óskar eftir því að skoða innréttingarnar með Gunnari Magnússyni hönnuði þeirra.
5. Deiliskipulag – reitur 1.133.2 – Framnesvegsreitur. Gildandi deiliskipulag Framnessreits lagt fram til kynningar. Fyrir liggur tillaga Húsafriðunarnefndar að friðun bankahúsanna að Framnesvegi 20 til 26A.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Húsafriðunarnefnd gerir ekki athugasemd við heimildir til viðbygginga við húsin að Framnesvegi 20 til 26A í gildandi deiliskipulagi Framnesvegsreits.
6. Tryggvagata 10, Reykjavík (1905) – beiðni um niðurrif. Bréf frá Sigurði Halldórssyni arkitekt hjá Glámu – Kím, dags. 7. júní 2009, ásamt ástandsskýrslu frá Verkfræðistofunni Vík.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Frestað. Í samræmi við lög um húsafriðun 104/2001 er óskað eftir umsögn borgarminjavarðar.
Pétur H. Ármannsson vék af fundi við afgreiðslu erindisins.
7. Jónshús, Grundarbraut 1, Ólafsvík (1892) – flutningur. Fyrirspurn Sigurðar Jónssonar, dags. 20. júlí 2009, vegna mögulegs flutnings hússins frá Ólafsvík.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Verði stöðu varðveisluverðs húss ógnað í sínu umhverfi og talið að varðveislugildi geti minnkað vegna þess, gerir Húsafriðunarnefnd að öllu jöfnu ekki athugasemd við flutning þess á nýjan stað, sé hann talinn geta hentað því betur. Á það ber hins vegar að benda að sveitarstjórnir bera ábyrgð á gerð skipulags og veita byggingar- og framkvæmdaleyfi.
8. Hríseyjarviti (1920) – búnaður utan á vitanum. Bréf frá Sigurbjörgu Árnadóttur, formanni Íslenska vitafélagsins – félags um íslenska strandmenningu, dags. 8. júlí 2009. Hún skorar á hlutaðeigandi aðila að fjarlægja búnað sem komið hefur verið fyrir utan á vitanum.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Hríseyjarviti var friðaður með bréfi frá menntamálaráðherra árið 2003. Í lögum um húsafriðun 104/2001 segir m.a. í 9.gr. að óheimilt sé að gera nokkrar breytingar á friðaðri húseign án leyfis Húsafriðunarnefndar og jafnframt að leyfi nefndarinnar þurfi til að setja skilti eða aðrar áletranir á friðuð hús. Forstöðumanni er falið að senda fyrirspurn til Siglingastofnunar Íslands um ástæður þess að ekki hefur verið haft samband við Húsfriðunarnefnd vegna loftneta og gervitungldiska sem settir hafa verið utan á Hríseyjarvita. Einnig skal bent á að viðhaldi vitans er ábótavant.
9. Hafnargata 47, Bolungarvík (1908) – beiðni um niðurrif. Bréf frá Gísla Gunnlaugssyni, byggingarfulltrúa Bolungarvíkurkaupstaðar, dags. 23. júlí 2009, sem óskar eftir umsögn Húsafriðunarnefndar vegna umsóknar um niðurrif hússins. Þrátt fyrir óskir þar um liggur ekki fyrir umsögn minjavarðar.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Frestað. Forstöðumanni falið að skoða húsið á staðnum.
10. Faktorshúsið, Neðstakaupstað, Ísafirði (1765) – skjöldur á húsið. Bréf frá Önnu G. Gylfadóttur, byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar, dags. 27. júlí 2009, sem óskar umsagnar um beiðni Jónu S. Bjarnadóttur um að setja skjöld danska konsúlembættisins á húsið.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Ekki gerð athugasemd við erindið.
11. Dagverðarneskirkja (1848 / 1934). Tillaga um að kirkjan verði færð á friðunarskrá. Lagðir fram minnispunktar Guðmundar Lúthers Hafsteinssonar arkitekts vegna skoðunar á kirkjunni, 2. ágúst 2009.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Í ljósi þess sem fram kemur í framlögðum minnispunktum, bæði hvað varðar ytri og innri gerð kirkjunnar, samþykkir Húsafriðunarnefnd að Dagverðaneskirkja skuli sett á skrá nefndarinnar yfir friðuð hús.
12. Hringbraut 35-49, Reykjavík (1942-44) – tillaga að friðun. Á fundi Húsafriðunarnefndar 9. október 2008 var samþykkt að fela forstöðumanni að undirbúa tillögu að friðun fjölbýlishúsanna að Hringbraut 37-47 og lægri viðbygginga nr. 35 og 49. Bréf voru send til allra eigenda og þeim gefinn hæfilegur frestur til að gera athugasemd við tillöguna. Tvö bréf með athugasemdum bárust. Forstöðumaður svaraði arhugasemdum með bréfum dags. 20. júní 2009. Einnig liggur fyrir umsögn borgarminjavarðar, dags. 16. júní 2009, sem tekur undir tillögu nefndarinnar um friðun.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Forstöðumanni falið að senda tillögu um friðun húsanna að Hringbraut 35 – 49 til menntamálaráðherra.
13. Ólafsdalur, skólahús (1896) – breytingar innanhúss. Fyrir liggja teikningar Hjörleifs Stefánssonar, arkitekts, dags. 22. júní 2009, af breytingum innanhúss. Nú er beðið um umsögn vegna tillagna að staðsetningu salerna á öllum hæðum hússins.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Ekki gerð athugasemd við erindið.
14. Grandagarður 95, Reykjavík – ný innkeyrsluhurð. Í bréfi dags. 10. ágúst 2009, óska Faxaflóahafnir eftir umsögn vegna umsóknar Fiskkaupa hf um að gera innkeyrsluhurð á bakhlið verbúðar nr. 95 við Grandagarð.
Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Ekki gerð athugasemd við erindið.
15. Önnur mál.
a) Kirkjur Íslands – bindi 13 og 14 komin út. Fjallað er um friðaðar kirkjur í Borgarfjarðarprófastsdæmi: Akraneskirkju, Fitjakirkju, Gilsbakkakirkju, Hvanneyrarkirkju, Innra-Hólmskirkju, Leirárkirkju, Reykholtskirkju, Stóra-Áskirkju, Akrakirkju, Álftaneskirkju, Álftártungukirkju, Borgarkirkju, Hjarðarholtskirkju, Hvammskirkju og Stafholtskirkju. Þorsteinn Gunnarsson kynnti útgáfuna og sýndi og gerði grein fyrir sérprentum á einstökum kirkjum. Stefnt er að því að hægt verði að panta sérprent úr áður gefnum bindum. Þá lagði Þorsteinn fram endurskoðaða útgáfuáætlun og greindi frá því að á síðasta fundi ritnefndar hefði verið samþykkt að forstöðumaður Húsafriðunarnefndar tæki sæti í ritnefnd Kirkna Íslands. Auk þess sagt frá opnun sýningar í Reykholti hinn 24. júlí s.l.
b) Viðeyjarstofa. Þorsteinn Gunnarsson gerði grein fyrir ferð sinni í Viðey. Húsafriðunarnefnd lýsti yfir ánægu sinni með þá bragarbót sem að undanförnu hefur verið gerð á umhirðu Viðeyjarstofu, friðaðs mannvirkis í eigu Reykjavíkurborgar.
c) Verbúðir Grandagarði 15-35, 43-81 og 85-99, Reykjavík (1945-55) – friðun. Með bréfi menntamálaráðuneytisins dags. 29. júlí 2009 tilkynnti ráðuneytið að menntaráðherra hefði friðað verbúðirnar hinn 26. mars 2009. Friðunin nær til ytra byrðis verbúðanna.
d) Hafnargata 11, Ríkið, Seyðisfirði (1918) – friðun. Með bréfi menntamálaráðuneytisins dags. 29. júlí 2009 tilkynnti ráðuneytið að menntaráðherra hefði friðað Hafnargötu 11 á Seyðisfirði hinn 24. febrúar 2009. Friðunin nær til ytra byrðis hússins og verslunarinnréttinga á 1. hæð, sem eru frá því um 1900.
e) Vestfirðir. Forstöðumaður gerði grein fyrir ferð sinni um Vestfirði í júlí s.l.
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 16:30.
Nikulás Úlfar Másson forstöðumaður
