Árið 2001 voru gerðar gagngerar breytingar á lögum um þjóðminjar. Þá var m.a. húsafriðunarnefnd, sem fram að því hafði verið undirnefnd þjóðminjaráðs, gerð að sjálfstæðri stofnun með ráðherraskipuðum forstöðumanni. Við þessar lagabreytingar var í raun ekki gerður skýr greinarmunur milli starfssviðs og ábyrgðar stofnunarinnar annars vegar og nefndarinnar hins vegar. Þannig hefur forstöðumaður Húsafriðunarnefndar eftir sem áður jafnframt virkað sem framkvæmdastjóri nefndarinnar og ábyrgð og skyldur samkvæmt lögum um húsafriðun verið framfylgt í góðri samvinnu nefndar og stofnunar.
Nánar um hlutverk Húsafriðunarnefndar, nefndarmenn og starfsmenn stofnunarinnar má sjá með því að smella á hnappa hér til vinstri.
