Húsverndarstofa
Fræðslustofa um viðhald og viðgerðir eldri húsa
Ráðgjöf á Árbæjarsafni alla miðvikudaga milli kl. 16 til 18. Símaráðgjöf á sama tíma.
Í júní 2007 var opnuð í Kjöthúsinu á Árbæjarsafni Húsverndarstofa um viðhald og viðgerðir eldri húsa. Að Húsverndarstofunni standa Húsafriðunarnefnd ríkisins, Iðan fræðslusetur og Minjasafn Reykjavíkur. Húsverndarstofan er hugsuð fyrir húseigendur sem halda við eða endurbæta á hús sín og fagmenn, bæði iðnaðarmenn og arkitekta.
Sjá nánar á vef Minjasafns Reykjavíkur.
