Hlutverk Húsafriðunarnefndar
Hlutverk Húsafriðunarnefndar
Húsafriðunarnefnd stuðlar að varðveislu byggingararfs þjóðarinnar og metur hvaða hús er rétt að friða hverju sinni og gerir um það tillögur til menntamálaráðherra. Nefndin hefur samráð við embætti þjóðminjavarðar og minjavörð þess landsvæðis sem hús tilheyrir þegar fjallað er um friðun húss. Húsafriðunarnefnd fer með yfirstjórn og veitir styrki úr húsafriðunarsjóði. Jafnframt er húsafriðunarnefnd umsagnaraðili fyrir ráðherra í málum er snerta húsafriðun.
Hlutverk Húsafriðunarnefndar er að stuðla að varðveislu byggingararfs þjóðarinnar. Því hlutverki sinnir hún með margvíslegum hætti, m.a. með því að:
- móta stefnu í húsverndunarmálum,
- meta hvaða hús er rétt að friða hverju sinni og gera um það tillögur til menntamálaráðherra,
- fara yfir umsóknir um breytingar, viðhald eða endurbætur á friðuðum húsum,
- hafa eftirlit með friðuðum húsum og þeim framkvæmdum sem nefndin styrkir,
- gefa álit á áformum um breytingar, flutning eða niðurrif húsa sem reist eru milli 1850 og 1918,
- stjórna Húsafriðunarsjóði og veita úr honum styrkjum samkvæmt úthlutunarreglum sjóðsins,
- halda skrá yfir öll friðuð hús í landinu,
- veita ráðgjöf og fræðslu um viðhald og varðveislu gamalla húsa,
- stuðla að gerð húsakannanna og útgáfu þeirra,
- standa fyrir byggingarsögulegum rannsóknum og útgáfu rita um þær.
