Rit um friðaðar kirkjur
Það var árið 1996 að Húsafriðunarnefnd og Þjóðminjasafn Íslands ákváðu að ganga til samstarfs um menningarsögulega úttekt á öllum friðuðum kirkjum landsins – 207 að tölu – gripum þeirra og minningarmörkum, þar sem horft væri á efnið frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu, og gefa út í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi. Hugmyndin var borin undir biskup Íslands, sem studdi hana heils hugar, og gerðist Biskupsstofa fyrir hönd þjóðkirkjunnar aðili að útgáfunni strax í upphafi. Meðútgefandi og dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.
Í heild sinni er verkinu ætlað að verða yfirgripsmikið fræðslu- og kynningarrit, sem höfðar til almennings og hvílir á traustum rannsóknum. Þá er og til þess ætlast að verkið standist fræðilegar kröfur um nákvæmni og vinnubrögð og nýtist á þann hátt fræðimönnum.
Í ritinu eru tvö meginumfjöllunarefni: Annars vegar hið varðveitta mannvirki, byggingarlist þess og saga, hins vegar kirkjugripir og minningarmörk, list þeirra og saga. Um þetta tvennt er fjallað á ítarlegan hátt, en öðru efni, sem ekki telst til kjarna umræðunnar, aðeins gerð lausleg skil. Fjallað er um þær kirkjur einar, sem friðaðar eru samkvæmt lögum um húsafriðun, en það eru allar kirkjur, sem reistar eru fyrir 1918, og kirkjur þær sem menntamálaráðherra hefur friðað að fenginni tillögu Húsafriðunarnefndar.
Bókarkaflar eru jafnmargir kirkjunum og er hver þeirra í sex greinum. Fremst er ágrip af sögu kirkjustaðar. Því næst er kirkjunni gerð skil í þremur greinum, byggingarsögu, lýsingu og byggingarlist. Fimmta grein fjallar um gripi og áhöld, sögu þeirra, minja- og listgildi og hlutdeild í guðsþjónustunni. Lokagreinin er helguð kirkjugarði og minningarmörkum.
Ritnefnd skipa þau Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður, Nikulás Úlfar Másson forstöðumaður Húsafriðunarnefndar, herra Karl Sigurbjörnsson biskup og Þorsteinn Gunnarsson arkitekt. Ritstjórn er í höndum þeirra Þorsteins og Jóns Torfasonar skjalavarðar á Þjóðskjalasafni.
Þorsteinn Gunnarsson hefur aðsetur í húsakynnum Húsafriðunarnefndar að Suðurgötu 39.
Netfang hans er thorsteinn (hjá) husafridun.is.
Símanúmer: 570 1304.
Sjá nánar hér.
