Húsafriðunarsjóður
Hlutverk Húsafriðunarsjóðs er skilgreint í 17. gr. laga um húsafriðun (104/2001). Hlutverk Húsafriðunarsjóðs er að veita styrki til viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og mannvirkjum. Heimilt er að veita styrki til viðhalds annarra húsa en friðaðra sem að dómi Húsafriðunarnefndar hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi. Sjóðnum ber að stuðla að byggingarsögulegum rannsóknum og útgáfu rita um þær.
Úthlutun úr Húsafriðunarsjóði 4. mars 2011:
Alls bárust 321 umsókn um styrki til endurbóta og viðhalds á varðveisluverðum húsum vítt og breytt um landið og gerð húsakannana og rannsókna. Af þeim voru 91 ný og 26 umsóknir til Fjárlaganefndar Alþingis. Alls voru veittir 172 styrkir fyrir samtals kr. 95.450.000, en af þeim komu kr. 26.800.000 beint úr Fjárlaganefnd.
Að öðru leyti er stuðst við reglur um úthlutun úr Húsafriðunarsjóði.
