Styrkumsóknir Húsafriðunarsjóðs

 


1. mars 2013


Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2013. Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2013.

Stefnt er að því að úthlutun liggi fyrir í byrjun maí.

Til að úrvinnsla umsókna taki sem stystan tíma mælist Minjastofnun til að umsóknir berist sem fyrst.


Umsækjendum er bent á að kynna sér Reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði.



LEIÐBEININGAR:

 

Umsóknareyðublaðið, sbr. netumsókn hér til hliðar, skýrir sig að mestu leyti sjálft. Þegar umsóknareyðublaðið hefur verið fyllt út er smellt á SENDA hnappinn og fer þá umsóknin til Minjastofnunar Íslands til afgreiðslu.

 

Fullklára verður hverja umsókn og senda, þar sem ekki er mögulegt að vista hálfkláraða umsókn og byrja aftur seinna. Áður en umsókn er send, þ.e. smellt á SENDA hnappinn, er ráðlegt að prenta hana út, en að auki mun verða send staðfesting á því að umsókn sé móttekin, sé rétt netfang gefið upp.

Allar viðbótarupplýsingar sem sendar eru með umsókn skal senda á netfangið umsoknir@husafridun.is.






Útlit síðu: